Litla hestabúðin á Sólvangi
Cart 0

Litla Hestabúðin @Sólvangur Icelandic Horse Center

Nói hnakkur

375.000 kr

Nói er einstaklega vandaður hnakkur sem hannaður er af danska fyrirtækinu Tølthester í samvinnu við marga þekkta reiðmenn. Tølthester hafa áratuga reynslu í framleiðslu reiðtygja og er Nói einn sá vinsælasti úr þeirra smiðju.

Hnakkurinn er gerður úr hágæða leðri og veitir mjög gott sæti ásamt því að lagast vel að hestinum. Við þróun hnakksins var reynt að líkja sem mest eftir hnökkum sem eru með ullarfyllingu og er undirlag hans því byggt upp af þremur lögum af latexi. Sem gerir það að verkum að hann er einstaklega mjúkur og vænn fyrir bæði hesta og menn. Þá er einnig mögulegt að fá hnakkinn með ullarfyllingu. 

Er með prufuhnakk á Sólvangi sem hægt er að skoða og prófa.

Hnakkinn þarf að sérpanta og tekur afhending um tvær vikur. Nokkrar gerðir eru í boði af hnakknum og einnig er hægt að sérpanta liti á leðrið og ráða fyllingu. Þá er afhendingartími lengri. Endilega hafðu samband ef þú hefur áhuga á hnakknum og ég segi þér betur frá honum og hvernig þú getur prófað og pantað.



Share this Product


More from this collection