Hit-Air öryggisvesti með loftpúðum
Hit-Air vestin eru framleidd af fyrirtækinu sem fann upp öryggisvesti með loftpúðum og hefur það frá upphafi verið í fararbroddi nýsköpunar og tækni fyrir öryggi móturhjólakappa og knapa á heimsvísu. Hit-Air býr yfir um 20 ára reynslu og hefur unnið ötulega að rannsóknum og þróun á uppblásanlegum öryggisvestum. Hit-Air er margverðlaunað fyrir öryggi og gæði.
Hit-Air vestið blæs upp þegar þú dettur af hestinum þínum og veitir góða höggvörn fyrir hrygg, rifbein, brjóst og viðkvæm líffæri. Öryggisvesti með loftpúðumi eru sífellt að verða vinsælli í hestaíþróttum vegna aukinnar verndar sem þau veita og hið margverðlaunaða Hit-Air öryggisvesti er ómissandi viðbót við hvers kyns öryggis búnað!
Hit-Air vestið virkar sem höggdeyfikerfi fyrir líkamann sem veitir hámarksvörn og hjálpar til við að koma í veg fyrir meiðsli. Við fall blæs vestið upp á 0,25 sekúndum til að tryggja að það sé að fullu blásið upp áður en það kemst í snertingu við jörðu eða aðra hindrun. Þegar loftpúðarnir þenjast út heyrist ekki hvellur - enda hefur Hit-Air lagt mikið upp úr að virknin sé hljóðlát til að trufla ekki hestana. Þegar Hit-Air vestið þitt hefur síðan blásið upp er ekkert mál að smella því aftur saman en það verður að skipta um CO2 hylki áður en það er notað aftur. Það er auðvelt og með vestinu fylgja verkfæri til að skipta um hylki. Hylkin fást keypt bæði í verslun og vefverslun.